22.6.11

Vúhú! Ný búð og slatti af tilboðum :)

Ahh loksins komst búðin upp. Ég ákvað bara að láta vaða þótt hún sé ekki 100% fullkomin ennþá. Það vantar einhverjar þýðingar hér og þar. Svo sá ég að kortagáttin var með eitthvað vesen þannig að ég tók hana út. Hún verður vonandi komin inn í dag eða á morgun. Ég bið fólk að láta mig endilega vita ef það lendir í einhverju veseni. frjosemi@frjosemi.is.

Til hamingju með afmælið, Frjósemi.is! 

20.6.11

Komin úr fríi

Frjósemi.is tók sér sumarfrí í vikunni og er mætt aftur á svæðið. Ég er eins og biluð plata hérna en því miður á ég enn í forritunartengdum vandamálum með nýju síðuna og því seinkar henni enn frekar. Júnítilboðin breytast þá bara í júlítilboð :) 

Búðin á samt afmæli í júní og er orðin eins árs, jibbí! 


7.6.11

Smá tafir :)

Vegna tæknilegra örðugleika (ókei, ókei, ég klúðraði dálitlu) opnar "nýja" búðin ekki alveg strax ;) Ég þarf að kafa djúpt til að finna mitt innra forritunarnörd og redda málunum. Það tekur vonandi ekki of langan tíma.

26.5.11

Fyrsta mál á dagskrá - Lærðu á tíðahringinn þinn

Staðreyndin er sú að flestar konur sem ákveða að eignast barn hafa ekki mikla þekkingu á tíðahringnum sínum. Þetta er alls ekki illa meint hjá mér og ég viðurkenni alveg að þegar ég stóð í þessum sporum fyrir mörgum árum hafði ég ekki hugmynd um hvenær væri besti tíminn til að reyna, hversu lengi sæði lifir, hvenær egglos verður eða neitt annað í þeim dúr. Ég fékk jú einhverja fræðslu í grunnskóla og skildi alveg þetta "sæði syndir að egginu og frjóvgar það" en lítið meira en það :) Eins og sést í þessari frétt er þetta ekkert til að skammast sín fyrir þar sem tveir þriðju breskra kvenna vita ekki hvaða dagar í tíðahringnum eru vænlegastir til árangurs í þessum efnum. Ég hef áður rekið augun í svipaðar tölur þannig að ég býst við að þetta sé nokkuð rétt.

Ég þyrfti örugglega að skrifa margar blaðsíður ef ég ætlaði að útskýra allt mjög ítarlega þannig að ég kannski stytti mér leið og fjalla ítarlega um einstaka hluta seinna. Ég gerir ráð fyrir því í umfjölluninni að tíðahringurinn sé reglulegur en óreglulegir hringir eru auðvitað algjörlega sér pistill út af fyrir sig. Byrjum á því að skoða góða mynd til útskýringar:

Eggbússkeið - Follicular phase

Ókei. Myndin útskýrir tíðahringinn. Efst sjáum við að þetta er 28 daga hringur og dagur 1 er þegar blæðingar hefjast. Á þeim tíma er grunnhitastig líkamans (Basal body temperature) lágt og hormónar (FSH, LH, estrógen og prógesterón) í lágmarki. Ég kem að hormónunum seinna.

Ef við lítum að 7. degi sirka sjáum við að eitthvað fer að gerast. Hitastigið er ennþá lágt en estrógen-hormónið fer að stíga hægt og rólega. Estrógenið hefur meðal annars það hlutverk að undirbúa slímhúðina í leginu til að taka á móti frjóvguðu eggi.

Upp úr sirka 10 degi tíðahrings er meira um að vera. Líkamshitinn er ennþá lágur en estrógen er í hámarki og tvö önnur skemmtileg hormón rísa. Þau eru LH (luteinizing)-hormónið sem meðal annars gefur líkamum merki um að hafa egglos og FSH (follicle stimulation)-hormónið sem örvar vöxt eggbúsins.

Þá er komið að því. Aðalatriðið í tíðahringnum fyrir þær sem eru að reyna að eignast barn - egglos á 14. degi. Hérna sjáum við aðallega þrennt gerast.


  • Í fyrsta lagi losnar eggið úr eggbúinu. 
  • Í öðru lagi verður eggbúið (follicle) að gullbúi (corpus luteum) sem er eins og lítil blaðra á eggjastokknum. 
  • Í þriðja lagi veldur prógesterónið sem framleitt er í gullbúinu því að grunnhitastig líkamans hækkar að meðaltali um hálfa gráðu eða svo. 
Luteal phase - Gullbússkeið

Ókei, frábært. Egglosið er búið, hitastig líkamans hefur hækkað og flest hormón nema prógesterón draga sig í hlé. Á myndinni er ekki gert ráð fyrir að þungun hafi átt sér stað og því gerist það í lok tíðahringsins að prógesterónið lækkar aftur og því lækkar líkamshitinn. Blæðingar hefjast.

Og hvað?

En hvað skyldum við græða á þessari vitneskju? Jú, við getum notað atriðin sem fjallað var um til að hámarka líkurnar á því að getnaður eigi sér stað! Skoðum myndina aftur, já, sömu mynd, aftur ;)



Auðvitað geta konur stundað reglulega kynlíf og átt ágætis möguleika á því að verða þungaðar. En til að hámarka líkurnar er hægt að nota vitneskju okkar um tíðahringinn til að auka líkurnar. Það er tvennt sem við skulum hafa í huga:


  • Sæði lifir í allt að fimm daga. Það fer eftir aðstæðum í okkar líkama hversu lengi sæði lifir. Snemma í hringnum þegar slímhúðin er þurr og ekki með rétt sýrustig eru litlar líkur á því að sæðið nái að synda alla leið eða lifa í marga daga.
  • Mestar líkur á þungun eru rétt fyrir egglos. Samkvæmt rannsóknum hefur lítið upp á sig að stunda kynlíf eftir egglos þar sem eggið hrörnar hratt eftir að það losnar ef það frjóvgast ekki fljótt.
Þegar líkami okkar fer að nálgast egglos eru ýmis einkenni sem við getum fylgst með. Hjá mörgum konum eykst kynhvöt rétt fyrir egglos og þær verða varar við svokallaða "eggjahvítuútferð" (nice!). Ég mun fjalla nánar um hana í öðrum pistli, þið hafið þá eitthvað til að hlakka til. En ef þið eruð mjög spenntar getið þið gúglað "ewcm" eða "eggwhite cervical mucus" og jafnvel kíkt á myndir ef þið þorið. Ég ætla í það minnsta að segja ykkur að hún veitir sæðinu kjöraðstæður til að synda í og lifa í langan tíma.

Ef þið viljið vera vísindalegri og læra meira um ykkar hring eru ýmis hjálpartæki á boðstólnum (flest þeirra fást að sjálfsögðu hjá Frjósemi.is) en þau eru:

  • Hitamælir - helst með tveimur aukastöfum (37.xx) til að sjá hvenær egglos varð. Ég á án efa eftir að skrifa ítarlegan póst um hitamælingar, þið bíðið spenntar á meðan :)
  • Egglospróf. Þið munið eftir LH-hormóninu á myndinni? Það rýkur upp skömmu fyrir egglos og þar sem egglos verður yfirleitt um 12-36 tímum eftir jákvætt egglospróf er um að gera að henda sér í rúmið um leið og prófið sýnir jákvæða niðurstöðu.
  • Frjósemismælar. Auk þess að nema hækkunina á LH-hormóninu geta þessir ótrúlega hátæknilegu mælar numið hækkunina á estrógeni. Þið munið að estrógen nær hámarki á undan LH-hormóninu og því gefa mælarnir manni merki um nokkra auka daga þar sem maður er frjór og mögulega með góðar aðstæður fyrir sæðið til að lifa og svamla upp í egglaleiðarana. Án efa uppáhalds frjósemisgræjan mín :)
Þetta fer nú að verða lengsti bloggpóstur veraldar, þótt ég hafi ekki komist nærri því að skrifa um allt sem ég vildi koma að :) Það eru fleiri hjálpartæki sem eru mjög nytsamleg, eins og frjósemisvæn sleipiefni, frjósemispróf o.fl. en þau fá bara sérstaka umfjöllun seinna.

Niðurstaðan er þá sú, svo ég reyni nú að draga þetta saman í eitthvað vitrænt, að vænlegast til árangurs er að vita hvenær egglosið okkar er. Við erum jú ekki allar með 28 daga hring. Því þegar við vitum hvenær egglosið er getum við reynt að stunda kynlíf í sirka fimm daga fyrir egglos og kannski helst tvo til þrjá daga fyrir egglosið og á egglosdaginn sjálfan. (og einn til tvo auka daga til öryggis ef við erum ekki að mæla hitann og vitum ekki hvort egglosið hafi orðið). Þetta eru langbestu dagarnir til að hámarka líkurnar á að eggið nái að frjóvgast. 

Ég vona að ég hafi náð að útskýra eitthvað og vona að pistillinn komi að góðum notum á frjósemisferðalagi ykkar. Ef þið eruð ekki búnar að fá ykkur fullsaddar af egglosi, hormónum og slími mæli ég með þessu myndbandi sem kemur inn á margt sem ég var að tala um:


25.5.11

Fylgist vel með Frjósemi.is í júní!

Við erum að vinna í að hanna nýtt útlit fyrir búðina og ætlum að opna nýja og ferska síðu í júní. Þá á Frjósemi.is einmitt eins árs afmæli og því má búast við einhverjum afmælistilboðum ;)

Frjósemi.is mætir í bloggheima

Loksins tók ég mig til og bjó til frjósemisblogg :) Ég hef margt að segja og miðla til ykkar. Vonandi hafið þið gagn og gaman af. Ég ætla að reyna að krydda bloggið með vísun í nýjar og skemmtilegar rannsóknir, fræðslupistlum, reynslusögum og mögulega finn ég einhvern gestabloggara sem leyfir ykkur að fylgjast með sínu barneignarferli.